top of page
  • Facebook
  • Instagram

Íbúalistinn kynnir frambjóðendur

  • Writer: Ása Berglind Hjálmarsdóttir
    Ása Berglind Hjálmarsdóttir
  • Mar 14, 2022
  • 1 min read

Updated: Mar 15, 2022


ree

Íbúalistinn er nýtt framboð í Sveitarfélaginu Ölfusi. Það eru kraftmiklir og ólíkir einstaklingar sem mynda Íbúalistann en það sem sameinar þá er ástríða fyrir velferð samborgara sinna og viljinn til að bjóða fram krafta sína á komandi kjörtímabili til að vinna að málefnum Sveitarfélagsins Ölfuss.


Íbúalistinn vinnur nú að mótun stefnumála og vill gera það í virku samtali við íbúa, því vilji íbúa skiptir máli. Frambjóðendur munu bjóða upp á málefnafundi á næstunni og hvetur einnig öll áhugasöm til að hafa samband með því að senda póst á ibualistinn@gmail.com eða hringja beint í einhvern af frambjóðendum Íbúalistans.


Kæru íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi. Við hlökkum mikið til að kynna fyrir ykkur þau málefni sem við ætlum að leggja áherslu á og hvetjum ykkur til að fylgjast með á Facebook og instagram síðum Íbúalistans þar sem við ætlum að kynna vel bæði fólk og málefni. Verið ófeimin við að fylgja okkur, það að smella á “follow” eða “like” segir ekkert til um hvað þið ætlið að kjósa heldur einungis að þið ætlið að ganga vel upplýst að kjörborðinu þann 14. maí.



Hér fyrir neðan má sjá frambjóðendurna en hægt er að lesa meira um þau undir liðnum Frambjóðendur hér á síðunni.


ree

1. sæti

Ása Berglind Hjálmarsdóttir

Menningarstjórnandi, frumkvöðull og tónlistarkennari.

37 ára


ree

2. sæti

Böðvar Guðbjörn Jónsson

Hugbúnaðarsérfræðingur

29 ára


ree

3. sæti

Berglind Friðriksdóttir

Sálfræðingur

33 ára


ree

4. sæti

Sigfús Benóný Harðarson

Aðalvarðstjóri hjá ríkislögreglustjóra

42 ára


ree

5. sæti

Hrafnhildur Lilija Harðardóttir

Sálfræðingur

38 ára


ree

6. sæti

Rumyana Björg Ivansdóttir

Sjúkraliði

56 ára


ree

7. sæti

Arna Þórdís Árnadóttir

Verkefnastjóri

39 ára


ree

8. sæti

Steingrímur Þorbjarnarson

Jarð- og mannfræðingur

58 ára


ree

9. sæti

Guðlaug Arna Hannesdóttir

Geislafræðingur

27 ára


ree

10. sæti

Guðmundur Oddgeirsson

Öryggis- og vinnuverndarfulltrúi

64 ára


ree

11. sæti

Agnes Erna Estherardóttir

Bókhaldari, söngkona og smiður.

46 ára


ree

12. sæti

Davíð Reimarsson

Stuðningsfulltrúi

30 ára


ree

13. sæti

Óskar Hrafn Guðmundsson

Verkamaður

62 ára



ree

14. sæti

Elín Björg Jónsdóttir

Eftirlaunakona

69 ára


 
 
 

Comments


Hvað brennur á þér?
Sendu okkur línu eða skráðu þig bara á póstlistann

Takk fyrir að hafa samband, við svörum við fyrsta tækifæri.

Ef þú hefur áhuga á að styðja við framboðið

tökum við á móti fjárframlögum og annarri góðvild.

Vinsamlega hafðu samband á ibualistinn@gmail.com


Íbúalistinn tekur á móti fjárframlögum til stuðnings framboðinu á eftirfarandi reikning

kt. 460422 1750

Rn. 0133 - 26 - 5991

bottom of page