top of page

Íbúalistinn heimsækir dreifbýli Ölfuss



Allir íbúar í hverju sveitarfélagi eru jafn mikilvægir. Þá skiptir engu um hver þeirra bakgrunnur er, aðstæður eða búseta. Íbúar í Sveitarfélaginu Ölfusi voru samkvæmt Hagstofu Íslands 2481 þann 1. janúar síðastliðinn og þar af búa 561 íbúi í dreifbýli Ölfuss. Íbúalistinn, sem er nýtt óháð framboð í Ölfusi gerði mjög heiðarlega tilraun til að ná til íbúa í dreifbýli Ölfuss þegar þau auglýstu víða eftir áhugasömum þátttakendum fyrir þetta nýja framboð. Af 14 frambjóðendum er ein kraftmikil kona, Agnes í Riftúni, úr dreifbýlinu.


Við á Íbúalistanum viljum af mikilli einlægni setja okkur vel inn í mál sem brenna á íbúum, öllum íbúum. Þessvegna ætla frambjóðendur á Íbúalistanum fara vítt og breitt um dreifbýli Ölfuss laugardaginn 9. apríl. Tilgangur ferðarinnar er að hitta sem flesta íbúa í dreifbýlinu og hlusta á hvað þau hafa að segja um málefni Sveitarfélagsins Ölfuss.


Ferðin er hluti af málefnavinnu Íbúalistans og haldnir verða málefnafundir á eftirfarandi stöðum:


kl. 9.30 í pylsuvagninum í Selvogi kl. 11 á Læk kl. 13 á Kambastöðum í Bæjarþorpi kl. 17.30 á Básum í Efstalandi.


Auk þess ætla frambjóðendur að heimsækja Garðyrkjuskólann, Eldhesta og Hvamm til þess að fræðast um starfsemi þeirra. Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á opnu fundunum.


Fylgdu Íbúalistanum á facebook

Fylgdu íbúalistanum á instagram

206 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page